Fyrirlestur hjá Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð
Áföll eins og erfiður, ótímabær missir valda oftast gríðarlegum streituviðbrögðum hjá fólki.í lengri eða skemmri tíma.. Dr. Berglind Guðmundsdóttir sálfræðingur fjallar um efnið á fræðslukvöldi hjá Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð, n.k. fimmtudagskvöld 12. janúar. Fyrirlesturinn er í safnaðarheimili Háteigskirkju og hefst kl. 20:30. Hann er öllum opinn.
Ný dögun, Samtök um sorg og sorgarviðbrögð voru stofnuð árið 1987. Samtökin eru opin vettvangur um sorgarvinnu fyrir syrgjendur og fagfólk. Þau standa fyrir mánaðarlegum fræðslukvöldum og opnum hópum um sorg og sorgarviðbrögð. Þá standa samtökin fyrir lokuðum aðstandendahópum fyrir fólk sem hefur misst börn, maka eða vegna sjálfsvíga.
Heimasíða Nýrrar dögunar er www.sorg.is Nánari upplýsingar veitir Halldór Reynisson formaður Nýrrar dögunar s. 856-1571, netfang halldor.reynisson@kirkjan.is
Hvar verður þú um Jólin?
Þú mátt ekki vera einn.
"Ég verð heima, er aldrei einn
og allra síst um
Jólin".
Jólin eru tími gleði, friðar og kærleiks.
Jólin eru tími sælla minninga,
söknuðar og þakklætis.
Jólin eru sá tími
þegar ég finn í hjarta mínu
kærleik og frið,
hugsa til ykkar með gleði,
söknuði en umfram allt
þakka ég fyrir
góðar minningar.
Jólin eru sá tími þegar ég
óska þér og þínum
gleði og friðar
og kærleiks um komandi ár.
Eins
og fram hefur komið þá hlaut ég hvatningarverðlaun ÖBÍ 3. Desember sl. og fyrir
það er ég ofboðslega þakklátur. En þar sem mikil spenna var í loftinu þennan
dag og það kom mér mjög á óvart að ég skildi vera útnefndur þá bara "fraus" ég og náði þ.a.l ekki að þakka
fyrir mig eins og ég hefði viljað gera það.
Geri það hér með
Ég vil byrja á því að þakka
öllum þeim sem hafa gefið mér tækifæri og hrósað mér fyrir það sem ég geri
hvort sem það er í starfi eða lífi utan vinnu. Sú hvatning sem þið hafið gefið
mér er ómetanleg. Þeir sem tilnefndu mig fá þakkir fyrir það því án þeirra
verka væri ég ekki hér.
Notendur og samstarfsfélagar fá einnig þakkir fyrir að leita til mín og vilja vinna með mér.
Takk